top of page

Umræðufundur um seðlabankarafeyri

mið., 18. okt.

|

Reykjavík

Lokað hefur verið fyrir skráningu
Sjá aðra viðburði
Umræðufundur um seðlabankarafeyri
Umræðufundur um seðlabankarafeyri

Time & Location

18. okt. 2023, 15:00 – 17:30

Reykjavík, Vonarstræti 3, 101 Reykjavík, Ísland

About the event

Fjártækniklasinn og Seðlabanki Íslands bjóða til opins umræðufundar um seðlabankarafeyri í Iðnó þann 18. október kl. 15.

Seðlabankarafeyrir (e. central bank digital currency) er rafræn útgáfa seðlabanka á gjaldmiðli viðkomandi ríkis en á undanförnum árum hefur áhugi á útgáfu seðlabankarafeyris aukist mikið um allan heim og fyrr á árinu gaf Seðlabankinn út umræðuskýrslu um efnið.

Dagskrá fundarins:

15:00-16:00

- Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu

- William Zhang frá BIS Innovation Hub Nordic Centre

- Jón Helgi Egilsson, meðstofnandi Monerium

16:00-16:30

Pallborðsumræður - í pallborði verða:

- Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu

- Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika

- Jón Helgi Egilsson, meðstofnandi Monerium

- Marínó Örn Tryggvason, fyrrv. bankastjóri Kviku

- Kristján Ingi Mikaelsson, formaður Rafmyntaráðs Íslands og meðstofnandi Viska Digital Assets

Umræðum stýrir Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Fjártækniklasans.

16:30-17:30

Léttar veitingar og spjall

Vegna takmarkaðs sætafjölda biðjum við fólk vinsamlegast um að skrá sig á viðburðinn hér á síðunni (með því að smella á "RSVP").

Við vonumst til að sjá sem flesta á spennandi viðburði um framtíð og möguleika seðlabankarafeyris.

Share this event

Event Info: Events
bottom of page