top of page
Search

Nýsköpunarstyrkir á Íslandi og í Evrópu

Þann 24. febrúar stóð Fjártækniklasinn fyrir stafrænum fundi um Nýsköpunarstyrki á Íslandi og í Evrópu.


Á fundinum heyrðum við um hvaða styrkir eru í boði fyrir íslensk nýsköpunarfyrirtæki og hvar og hvernig er hægt að sækja um. Þær Anna Margrét frá Evris og Kolbrún frá Rannís fóru yfir möguleikana sem í boði eru fyrir fyrirtæki, hvernig nálgast megi upplýsingar um styrkina og umsóknarferlið.

Evris aðstoðar íslensk fyrirtæki við að sækja um erlenda styrki til nýsköpunar, meðal annars til vöruþróunar og undirbúnings markaðssetningar á erlendum mörkuðum. Evris sérhæfir sig þannig í að aðstoða íslensk fyrirtæki í nýsköpun við að færa sig inn á alþjóðlega markaði. Rannís, sem heyrir undir mennta- og menningarmálaráðuneytið, styður við nýsköpun og þekkingarsamfélagið á Íslandi með rekstri ýmissa sjóða og með því að aðstoða fyrirtæki og kynna alþjóðleg sóknarfæri og samstarfsmöguleika.


Ræðumenn voru:

  • Anna Margrét Guðjónsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Evris ehf.

  • Kolbrún Bjargmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannís

Fundarstjóri var Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Fjártækniklasans.


Að neðan má sjá upptöku frá viðburðinum.



bottom of page