top of page

þri., 16. mar.

|

Stafrænn fundur

Samtal um Bitcoin

Spjall við sérfræðinga um Bitcoin og aðrar rafmyntir.

Lokað hefur verið fyrir skráningu
Aðrir viðburðir
Samtal um Bitcoin
Samtal um Bitcoin

Time & Location

16. mar. 2021, 15:00 – GMT – 16:30

Stafrænn fundur

About the event

Þriðjudaginn 16. mars býður Fjártækniklasinn til stafræns fundar sem verður að þessu sinni í formi samtals milli Gunnars Jakobssonar frá Seðlabankanum og Kjartans Ragnars frá Rafmyntaráði.

Tilgangur fundarins er að fræðast um bálkakeðju- og rafmyntaheiminn, og þá sér í lagi um Bitcoin. Bitcoin er sífellt eftirsóttari rafmynt og hefur mikið hækkað í virði og vinsældum undanfarið, en að sama skapi hefur líka borið á gagnrýni og efasemdum um myntina. Undanfarið hefur meira borið á umræðum um myntina hérlendis og því tilvalið að setjast niður með tveimur sérfræðingum og komast að því hvað þær snúast um.

Viðmælendur verða:

  • Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika
  • Kjartan Ragnars, framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs

Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdastjóri Fjártækniklasans, stýrir umræðunum, en hann mun einnig taka við spurningum frá áhorfendum í gegnum spjallform á meðan á fundinum stendur.

Fundurinn fer alfarið fram á netinu, allir geta skráð sig og það kostar ekkert.

Slóð á fundinn: https://zoom.us/j/94324920744

Share this event

Event Info: Events
bottom of page